Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilega 4ra-5 herbergja rúmgóða 144.7 fm endaíbúð með glæsilegu útsýni, tvennum svölum auk stæði í bílakjallara á 4. hæð í lyftuhúsi við Flatahraun 1B Hafnarfirði. Stærri svalirnar yfirbyggðar 14.6 fm eru inn í fm tölu eignar en ekki minni svalirnar 6.6 fm .Frábær staðsetning og útsýni. Örstutt í alla verslun og þjónustu, sem og skóla ofl. Óvenju rúmgóðar yfirbyggðar svalir auk annarra minni svala. Íbúðin er mikið endurýjuð á árinu m.a. tvö glæsileg baðherbergi, gólfefni, hurðar ofl. Eignin skiptist m.a. þannig: rúmgóð
forstofa með skáp og setubekk, gangur, glæsilegt nýtt
baðherbergi með surtubaðkari, vönduð innrétting, marmaraflísar í hólf og gólf, led lýsing. Rúmgott
hjónaherbergi með skáp og rúmgóðu
glæsilegu baðherbergi fyrir innan, flott sturtuaðstaða, vönduð innrétting, marmaraflísar í hólf og gólf, ledlýsing, gluggi.
Tvö rúmgóð barnaherbergi.
Glæsilegt stórt eldhús opið inn í stofuna og borðstofuna, vönduð innrétting og tæki, og rúmgóð eyja með keramik helluborði og háfi. Góð
borðstofa við eldhús og rúmgóð
stofan með útgang á
s-v svalirnar. Við eldhús eru
óvenju rúmgóðar yfirbyggðar n-svalir með fallegu útsýni til Esjunar. Gott
þvottaherbergi og rúmgóð geymsla á gangi.
Vandað nýtt parket á gólfum. Innihurðar eru nýjar. Snyrtileg sameign þ.e. hjóla og vagnageymsla.
Gott stæði í bílakjallara. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jón Harðarson sölustj. í s. 893-2233 eða [email protected]og Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 eða [email protected]
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is