Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustjóri kynna : Nýkomin í einkasölu. Glæsileg 4-5 herbergja bjarta endaíbúð á efstu hæð (sérhæð 2.hæð frá götu) í góðu 6 íbúða húsi á þessum eftirsótta stað þar sem fagurt útsýnið er yfir Elliðavatnið og til fjalla. Íbúðin er samtals 144.3 fm. (að auki eru vandaðar nýlegar yfirbyggðar flísalagðar s-svalir sem ekki eru í fermetraölu eignar samkv.þjóðskrá.) Samtals stærð er því nær 160 fm. Mikið privat staðsetning í botnlanga, óbyggt svæði vestanmegin og að neðanverðu/sunnanmegin við húsið. Óhindrað stórkostlegt útsýni til suðurs og vesturs. Eignin getur verið laus við kaupsamning. Eignin skiptis m.a. þannig: Sérinngangur, forstofa með skáp, gangur, rúmgott
hjónaherbergi með fataherbergi innaf, og útgengt á
n-svalirnar (flísalagðar)
Tvö rúmgóð barnaherbergi með skáp. Fallegt
baðherbergi með fínni innréttingu, baðkar og sér sturtuaðstaða, flísar í hólf og gólf. Upphengt salerni og handklæðaofn. Gott
þvottaherbergi með innréttingu og vaski.
Glæsilegt eldhús opið inn í stofurýmið,vönduð endurnýjuð hvít innrétting með
eyju, spanhelluborð, innb.tæki í innréttingu fylgja.
Eldhúsið er opið inn í
stofuna og borðstofuna/borðkrókinn sem er afar fallegur.
Stofan er rúmgóð og falleg, útgengt þaðan út á flísalagðar rúmgóðar
yfirbyggðar svalirnar (sólstofa) í suður,
vönduð nýl. yfirbygging. Ísskápur, uppþvottavél fylgja sem og öll tæki í eldhúsi sem voru til staðar við sýningu. Í sameign er
sérgeymsla auk hefðbundin snyrtileg sameign.
Útsýnið er einstakt úr stofu/sólstofu/borðstofu og eldhúsi.Innfelld lýsing að hluta til. Hiti í gólfum á baði og forstofu.
Nýtt fallegt harðparket á gólfum. Rúmgóð bílastæði við húsið.
Óvenju fallegt og velhirt umhverfi.
Um er að ræða glæsilega og bjarta rúmgóða íbúð/sérhæð á einum vinsælasta og besta útsýnisstað í 203 Kópavogi. Örstutt í leik og grunnskóla ásamt frábærumgönguleiðum um og við Elliðavatn, einni helstu náttúruperlu Kópavogs.
Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj/eig. s. 893-2233 [email protected]Glódís Helgadóttir lgf. s.659-0510 [email protected]
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi