Kvistavellir 21, 221 Hafnarfjörður
132.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
235 m2
132.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2007
Brunabótamat
116.650.000
Fasteignamat
136.800.000

***Bókið einkaskoðun hjá Hlyni Halldórssyni í síma 698-2603 eða á [email protected]***

Hraunhamar og Hlynur Halldórsson löggiltur fasteignasali kynna: Frábærlega vel skipulagt einbýlishús á einni hæð við Kvistavelli í Hafnarfirði. Eignin er skráð 235,8 fm samkvæmt Þjóðskrá en þar af er bílskúr skráður 50,3 fm. Um er að ræða eign á skemmtilegum stað í barnvænu hverfi með stórum herbergjum, tveimur baðherbergjum og bílskúr með aukinni lofthæð. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Eignin telur: Anddyri, þrjú rúmgóð svefnherbergi, fataherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, þvottahús, geymslu og bílskúr.

Nánari lýsing: 
Anddyri: Flísar á gólfi og gott skápapláss
Gestasalerni: Inn af anddyri með flísum í hólf og gólf, upphengdu salerni, sturtuklefa og nýlegri innréttingu
Svefnherbergi 1: Bjart og rúmgott með viðarparketi á gólfi
Svefnherbergi 2: Bjart og rúmgott með viðarparketi á gólfi
Svefnherbergi 3/hjónaherbergi: Bjart og rúmgott með viðarparketi á gólfi og góðu fataherbergi
Baðherbergi:
Flísar í hólf og gólf, upphengt salerni, ljós innrétting, sturta, baðkar og handklæðaofn
Sjónvarpshol: Rúmgott með flísum á gólfi
Eldhús: Stórt og glæsilegt eldhús með flísum á gólfi og innréttingu með mjög góðu skápaplássi. Eldhúseyja með morgunverðarborði, ofn og örbylgju-/grillofn í vinnuhæð og span helluborð. Tengi fyrir uppþvottavél í vinnuhæð
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott rými með stórum gluggum, flísum á gólfi og útgengi á viðarverönd með skjólveggjum
Þvottahús: Góð lofthæð, flísar á gólfi, innrétting og útgengt á verönd
Geymsla: Með flísum á gólfi og glugga
Bílskúr: Bílskúrinn er skráður 50,3 fm, er með millilofti yfir hluta og mjög góðri lofthæð.

Snyrtilegt bílaplan með mynstursteypu og hita. Við húsið er ca 70 fm viðarverönd með skjólveggjum, heitum potti, matjurtarbeði og góðum grasfleti. 

Nánari upplýsingar veitir: 
Hlynur Halldórsson löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, [email protected]
Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 s. 893-2233 [email protected]




Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.500 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

https://hraunhamar.is/
https://www.facebook.com/hraunhamar
https://www.instagram.com/hraunhamar/ 

Smelltu hér til að fá frítt greiðslumat.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.