BÆJARGIL 77 EINBÝLI GARÐABÆ. VERÐTILBOÐ.
Hraunhamar kynnir: sérlega fallegt tvílyft einbýli með bílskúr samtals 246,5 fm, þarf af er bílskúrinn 40 fm. Góð staðsetning innst í botnlanga, í vinsælu hverfi í Garðabænum.
Í húsinu eru m.a. rúmgóðar stofur og 4 rúmgóð herbergi ,en möguleiki er á 5 herbergjum. Næg bílastæði. Velumgengið hús í góðu viðhaldi.
Eignin skiptist m.a. þannig: Neðri hæð: forstofa er flísalögð og rúmgóð með skáp, flísalögð góð gestasyrting með glugga, rúmgott hol með flísum á gólfi,
á vinstri hönd er rúmgóð stofa og borðstofa og innangengt í rúmgóða flísalagða sólstofu og þaðan er útgengt í garðinn og verönd með skjólgirðingu.
frá holi er stórt herbergi (borðstofa á teikningu) rúmgott bjart eldhús með snyrtilegri beyki innréttingu, flísar á milli skápa. innaf eldhúsi er
rúmgott þvottaherbergi með gluggum og útgang í bakgarðinn. góður steyptur stigi frá holi sem er parket lagður.
Efri hæð: rúmgott hol og stórt sjónv.hol (er herbergi á teikningu) stórt svefnherbergi með skáp, og tvö rúmgóð barnaherbergi með skáp.
Rúmgott baðherbergi, flísalag í hólf og gólf, ljós innrétting, baðkar og sturtuklefi. Frá holi eru rúmgóðar suður svalir.
Parket og flísar á gólfum.
Mjög fallegur garður.
Verönd með skjólgirðingu í suður.
Hiti í hellulögðu plani.
Rúmgóður bílskúr með opnara.
Verð tilboð:
Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 eða helgi@hraunhamar.is
Freyja M Sigurðard. lgf.