Hraunhamar kynnir í einkasölu glæsilegar íbúðir í byggingu í 10 íbúða fjölbýlishúsi á útsýnisstað í Urriðaholtslandinu í Garðabæ. Íbúðirnar skilast fullbúnar með gólfefnum til afhendingar í maí/júní 2018, frágengin lóð með sameiginlegu útivistarsvæði sem gengið er inn á af 2 hæð.
Nánari lýsing íbúðar 302:
Forstofa með fataskápum, gott hol, tvö svefnherbergi bæði með skápum, flísalagt baðherbergi með innnréttingu, góð sturta og þvottaaðstaða. Stofa/eldhús í opnu rými, falleg innrétting og vönduð eldunartæki. Stofa/borðstofa björt og rúmgóð, gengt út á skjólsælar og rúmgóðar svalir. Á jarðhæðinni er sérgeymsla og sér stæði í bílageymslu, auk reglubundinnar sameignar. Sjá nánar skilalýsingu seljanda.
Húsið er hannað með það í huga að allar íbúðir njóta útsýnis. Húsið er klætt að utan með álklæðningu og ál/tré gluggum þannig að hús er viðhaldslétt. Húsið er hannað af Úti-inni arkitektum og sá Hallgrímur Friðgeirsson innanhúsarkitekt um innanhúshönnun íbúðanna. Húsið er á fimm hæðum, 9 íbúðir á 2, 3 og 4 hæð, allar svalir rúmgóðar og skjólsælar. Á 5. hæð er glæsileg penthouse íbúð. Gott aðgengi er að íbúðunum, gengið er út á svalaútgang í tvær íbúðir á hverri hæð, góð lyfta er í húsinu. Á jarðhæð eru geymslur, bílageymslur og bílskúrar.
Þetta er falleg íbúð með frábæru útsýni yfir Urriðakotsvatnið til suðurs og vesturs.
Byggingaraðili er Nesnúpur ehf.
_____________________________________________________________________________________
Bókið skoðun hjá sölumönnum Hraunhamars.
Hlynur Halldórsson lögg.fasteignasali s. 698-2603, tölvupóstur: hlynur@hraunhamar.is
Helgi Jón Harðarson sölustjóri s. 893-2233 tölvupóstur: helgi@hraunhamar.is
Hilmar Þór Bryde lögg.fasteignasali s.892-9694 tölvupóstur: hilmar@hraunhamar.is