Hraunhamar fasteignasala kynnir: Bjarta og rúmgóða tveggja herbergja íbúð á 1. hæð með stæði í bílakjallara á frábærum stað við Lækjargötu 34 í Hafnarfirði.
Íbúðin er skráð 83,3 fm skv. FMR en þar af er 8,3 fm geymsla.Nánari lýsing eignarinnar:Rúmgóð forstofa með fataskáp, gott hol.
Baðherbergi er flísalagt. Baðkar með sturtuaðstöðu í, upphengt salerni, ljós innrétting. Þvottaaðstaða inn á baðherbergi.
Rúmgott svefnherbergi með fataskáp.
Bjart opið alrými. Útgengt frá stofu út á yfirbyggðan sérafnotaflöt.
Opið frá alrými inn í eldhús.
Ljós innrétting í eldhúsi. Nýlegur bakaraofn og helluborð.
Sér geymsla í sameign.
Stæði í bílakjallara.
Frábær staðsetning miðsvæðis í Hafnarfirði í göngufjarlægð við skemmtilega nátturu og stutt í alla helstu þjónustu. Nánari upplýsingar veitir:
Glódís Helgadóttir lgf. í s. 659-0510 eða [email protected]
og Helgi Jón Harðarson sölustj. í s. 893-2233 eða [email protected]
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is