Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustj. kynna: Glæsilega, bjarta og nýlega (2020) 130 fm 4ja herbergja endaíbúð á efstu hæð í litlu glæsilegu lyftuhúsi (10 íbúðir) útsýni. Að auki fylgir rúmgott stæði í bílahúsi. Skjólgóðar fínar s-svalir. Húsið er arkitekta hannað og vandað að allri gerð. Húsið er klætt að utan með vandaðri klæðningu og því viðhaldslétt. Eignin skiptist m.a. þannig: Falleg forstofa, skápur, gangur, glæsileg björt stofa/borðstofa, með útg. á rúmgóðar s-svalirnar. Glæsilegt eldhús sem er staðsett í stofurýminu, vandaðar innréttingar og tæki, flísar á milli skápa. Tvö rúmgóð barnaherbergi með skáp, rúmgott hjónaherbergi með skáp, glæsilegt rúmgott baðherbergi með fínni flísalagðri sturtuaðstöðu og baðkari líka. flísar í hólf og gólf. Gluggi.
Þvottavél/þurrkari á baðherbergi, innrétting og skolvaskur, það væri auðveldlega hægt að stúka þvottaðstöðu af með rennihurð.
Fallegt harðparket á gólfum. Innfelld lýsing á köflum. Extra há lofthæð er í íbúðinni. Húsið stendur á góðum stað í Urriðaholtshverfinu Garðabæ, í enda botnlanga og í göngufæri við skóla,útivist ofl. Húsið er glæsilegt og vandað, bæði að innan og utan. Aðkma að húsinu er bæði að ofanverðu og neðanverðu.
Rúmgóð sérgeymsla í sameign.Fallegur garður í sameign, hellulagðir stígar og bílastæði. Öll hefðbundin sameign til fyrirmyndar.
Þetta er áugaverð eign sem vert er að skoða.Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 [email protected]Glódís Helgadóttir lgf. [email protected] s. 659-0510Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is