Opið hús: 09. ágúst 2022 kl. 16:45 til 17:15.Opið hús: Vindás 4, 110 Reykjavík, Íbúð 304. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 9. ágúst 2022 milli kl. 16:45 og kl. 17:15. Barbara Bergþórsdóttir s. 823-0339 tekur vel á móti ykkur, allir velkomnir!
Hraunhamar og Barbara Rut Bergþórsdóttir kynna: Bjarta og vel skipulagða tveggja herbergja endaíbúð með einstaklega fallegu útsýni og góðum svölum á eftirsóknarverðum stað við Vindás í Árbæ. Eignin er skráð 58,8 fm samkvæmt Þjóðskrá en þar af er geymsla 4 fm.
Viðhald síðustu ára:
-Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjuð 2020
-Gólfefni, fataskápar og hurðir endurnýjaðar 2020
-Steypuviðgerð á svölum, svalahandrið endurnýjað og ný klæðning á svölum
-Skipt um glugga sem komnir voru á tíma, m.a. tvö opnanleg fög innan íbúðar
-Framkvæmdir við þak ca 2019
Fasteignamat 2023: 39.950.000 kr
Eignin telur anddyri, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, geymslu og sameiginlegt þvottahús.Nánari lýsing:Anddyri: Harðparket á gólfi og rúmgóður fataskápur
Eldhús: Harðparket á gólfi, ljós rúmgóð innrétting með eyju, innbyggð uppþvottavél, tengi fyrir þvottavél og nýleg eldhústæki.
Stofa: Bjart rými með stórum gluggum og frábæru útsýni. Harðparket á gólfi og útgengt á rúmgóðar svalir.
Herbergi 1: Bjart herbergi með fallegu útsýni, harðparketi á gólfi og mjög rúmgóðum skáp.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, baðkar með sturtu og dökk innrétting.
Íbúðinni fylgir
sér geymsla í sameign, sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.
Um er að ræða vel staðsetta eign þar sem stutt er í fallega náttúru, skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veita:
Barbara Rut Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali, s. 823-0339, [email protected]Stefan Rafn Sigurnannsson, lögglitur fasteignasali, s. 655-7000,
[email protected]Hlynur Halldórsson löggiltur fasteignasali, s. 698-2603,
[email protected]