**Eignin er seld með fyrirvara.**Mjög góður áhugi var fyrir eigninni og erum við með áhugasama aðila á skrá.**Frítt söluverðmat án skuldbindinga. Bókun hjá Ársæli í síma 896-6076 eða á netfanginu [email protected]**
Hraunhamar kynnir fallegt endaraðhús/sérhæð með aukaíbúð vel staðsett á besta stað í Suðurbæ Hafnarfjarðar, Húsið er skráð 257,6 fermetrar en er stærra á grunnfleti þar sem það er að hluta til undir súð.Glæsilegt útsýni.
Heitur pottur, stór sólpallur.
Aukaíbúð.Skipting eignarinnar: Forstofa, hol, eldhús, borðkrókur, stofa, borðstofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, geymsla og þvottahús.
Aukaíbúðin: Sérinngangur þar, forstofa, stofa, baðhergi og svefnherbergi.
Nánari lýsing: Húsið er pallabyggt.
Forstofa með fataskápum.
Gott
hol.Eldhús með fínni innréttingu og eyju. vönduð eldunartæki. Fínn borðkrókur við eldhúsið.
Björt
stofa og
borðstofa og þaðan er glæsilegt útsýni.
Tvö stór
svefnherbergi.Stórt og gott
fataherbergi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og er með innréttingu, baðkari og sturtu.
Í risinu er stórt og gott svefnherbergi sem er að hluta til undir súð og þaðan er utangengt út á svalir. undir súð er fín geymsla.
Á jarðhæðinni er stórt þvottahús.
Nýlega var settur gólfhiti og nýtt parket á stofu, borðstofu, tvö herbergi. Einnig var skipt flestar innihurðir.
Aukaíbúðin: Hún er með sérinngangi og er á jarðhæð hún er nýlega uppgerð. Gengið er í íbúðina neðanverðu við húsið.
Björt stofa og svefnherbergi með fataskáp, eldhús með smekklegri innréttingu. Flisalagt baðherbergi með innréttingu og sturtuklefa.
Fínn bílskúr, heitt og kalt vatn. Undir bílskúrnum er óuppfyllt rými sem býður upp á ýmsa möguleika.
Gólfefni eru parket og flísar.
Ytra umhverfið: Stór pallur cirka 100 fermetrar með skjólgirðingu. Heitur pottur, Hellulagt bílaplan með hitalögn. Fyrir framan íbúðina á neðri hæðina er hellögð verönd, grasflöt og trjágróður.
Falleg lýsing er í þakskeggi fyrir framan húsið og einnig á pallinum. Búið að koma fyrir raflögn fyrir hleðslustöð.
Húsið er vel staðsett og fyrir neðan húsið er fallegt opið svæði.
Húsið er upphaflega skráð sem endaraðhús, en á jarðhæð er séríbúð á öðru fastanúmeri, sem er ekki í þeirra eigu.
Þetta er fallegt hús á þessum eftirsótta stað í Suðurbæ Hafnarfjarðar. Stutt í skóla, leikskóla, suðurbæjarlaug og í göngufæri við miðbæ Hafnarfjarðar. Allar nánari upplýsingar veitir Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6076 eða sendið tölvupóst á netfangið [email protected] Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr.68.200.-m.vsk.
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983 og fagnar því 40 ára afmæli á árinu 2023.
Hraunhamar, í farabroddi í 40 ár. – Hraunhamar.is