Hringhamar 1, 221 Hafnarfjörður
62.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
80 m2
62.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
0
Fasteignamat
40.550.000

Hraunhamar kynnir nýtt fjölbýlishús vel staðsett í Hamranesi, nýjasta hverfi Hafnfirðinga. Hverfið er vel staðsett gengt Skarðshlíðarhverfinu í Hafnarfirði. 
Í húsinu eru 24 íbúðir og allar með hita í gólfi, íbúðirnar skilast fullbúnar að utan sem innan án gólfefna en með flísum á gólfum í votrýmum, einnig fylgir innbyggður ísskápur og uppþvottavél. 

Íbúð 203 er 80 fm og þriggja herbergja með svölum.

Húsið er staðsett innarlega í hverfinu og snýr einstaklega vel gagnvart sólu, Íbúðirnar eru vel skipulagðar og fylgja öllum íbúðum stórar og rúmgóðar svalir eða sérafnotasvæði. 

Smelltu hér til að skoða söluvef fyrir Hringhamar 1.

Smelltu hér til að sjá skilalýsingu.


Lýsing eignarinnar skv. teikningu:
Forstofa með fataskápum. 
Geymsla.
Gott hol.
Björt stofa og þaðan er utangengt út á svalir. 
Eldhús með smekklegri innréttingu, eldunartæki  frá AEG. 
Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum.
Herbergi með fataskáp.
Flísalagt baðherbergi með innréttingu, sturtu. gluggi á baði. 

Innréttingar eru frá GKS-gamla kompaníið og eldunartæki frá AEG. Sjá nánar í skilalýsingu.

Mikið er lagt upp úr hönnun og er húsið klætt að utan með álklæðningu og ál/tré gluggar og því á húsið að vera viðhaldslétt. 
Lóðin verður falleg og vel frágengin með leiksvæði. 

Þetta eru fallegar íbúðir sem vert er að skoða. 

Byggingaraðilar er Byggingarfélag Gunnars og Gylfa, BYGG sem eru þekktir fyrir traust og góð vinnubrögð í áratugi. 

Kaupendur greiða skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á.

Nánari upplýsingar veita sölumenn Hraunhamars:

Ársæll Steinmóðsson, löggilur fasteignasali, s. 896-6076, [email protected]
Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, [email protected]
Helgi Jón Harðarson, sölustjóri s. 893-2233, [email protected]
Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983 og fagnar því 40 ára afmæli á árinu 2023. 
Hraunhamar, í farabroddi í 40 ár. – Hraunhamar.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.