Furuás 37, 221 Hafnarfjörður
189.500.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
6 herb.
291 m2
189.500.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
146.850.000
Fasteignamat
155.300.000

Hraunhamar kynnir: Furuás 37, Glæsilegt einbýli á þessum vinsæla stað í Áslandinu í Hafnarfirði. Húsið er skrá 291,7 fm að stærð,  vandað hús með glæsilegri lóð, pöllum og skjólgirðingum. Frábært útsýni og staðsetning. VERÐTILBOÐ.
Hiti í gólfum og gólfsíðir gluggar. Skipti möguleg á minni eign kemur til greina. 

Skipting eignarinnar: Neðri hæðin er 126,6 fm, efri hæðin 130,1 fm og bílskúrinn 35 fm. hús með mögleika á að bæta við arin í stofunni, instabuskerfi er í húsinu sem stýrir hita og ljósum.


Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Rúmgóð forstofa með fataherbergi og geymslu, sjónvarpshol, tvö góð barnaherbergi, rúmgott herbergi (eða hjónaherbergi ) inn af því er síðan fataherbergi,
þvottahús og glæsilegt baðherbergi með fallegum innréttingu, og flottri sturtuaðstöðu.
Efri hæð: Fallegt alrými með miklu gluggum, rúmgott eldhús með eyju, mikið vinnupláss og skápapláss, þaðan er útgengt út á stóra verönd og garðinn, björt stofa og borðstofa, þaðan er útgengt út á svalir. Stórt hjónaherbergi með fataherbergi, fallegt baðherbergi og þaðan er einnig útgengt út á verönd að baka til.
Bílskúr: 35 fm, með epoxy á golfi, lítil geymsla er innaf honum, rafknúin bílskúrshurð.
Lóðin: er glæsileg með steyptri innkeyrslu þar sem er nóg af plássi fyrir bíla, falleg lýsing og hiti í plani.

Einstök staðsetning í þessu fallega hverfi. Fullbúin eign í sérflokki. 

____________________________
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 eða [email protected]
Hlynur Halldórsson löggiltur fasteignasali, s. 698-2603,[email protected] 


https://hraunhamar.is/
https://www.facebook.com/hraunhamar
https://www.instagram.com/hraunhamar/

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.