Tinnuskarð 1b, 221 Hafnarfjörður
94.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á tveimur hæðum
5 herb.
191 m2
94.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
0
Fasteignamat
22.000.000

Hrauhamar fasteignasala kynnir: Tinnuskarð 1b merkt 0102, 191 fm glæsilegt og vel hannað parhús á tveim hæðum ásamt mjög stórum svölum. Íbúðarhlutinn er 160,4 fm og bílskúr 30,6 fm.

Mjög góð staðsetning í Skarðshlíðinni í Hafnarfirði. Húisð er hannað af Sigurði Hafsteinssyni hjá Vektor.

Húsið er staðsteypt  aukin lofthæð er í húsinu og er það mjög vel skipulagt. Húsið skilast tilbúið að utan og fokhelt að innan ásamt grófjafnaðri lóð samkvæmt skilalýsingu.  

Húsið er á 2 hæðum og er gengið inn á neðri hæð. Innangengt er í bílskúr. Góð lofthæð er í stofum og eldhúsi.

Útveggir eru einangraðir að utan og verða klæddir með plötuklæðningu eða báruáli. Gluggar verða álklæddir timburgluggar. Svalahandrið verður stál eða álgrind klædd reyklituðu öryggisgleri. Sjá nánar í skilalýsingu.


Tillaga að skiptingu eignar:
Neðri hæð:

Anddyri, gangur, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvotthús/geymsla og bílskúr.
Efri hæð:
stofa, borðstofa og eldhús í alrými, hjónaherbergi, 1 svefnherbergi og baðherbergi.
 
Húsið er á mjög góðum stað í Skarðshlíðinni þ.s er stutt í grunn og leikskóla og eru fallegar gönguleiðir m.a upp við Ásfjallið.
Frábær staðsetning í þessu skemmtilega hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Leikskóli og skóli í göngufæri ásamt skemmtilegum gönguleiðum, algjör útivistarperla.


Áætlaður afhendingartími er sumarið 2023.
_________
Bókið skoðun hjá sölumönnum Hraunhamars:
Hlynur Halldórsson löggiltur fasteignasali s. 698-2603,  [email protected]
Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali s.896-6076, [email protected]
Helgi Jón Harðarson sölustj. í s. 893-2233 eða [email protected]
Freyja M. Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali í s. 862-4800 eða [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983 og fagnar því 40 ára afmæli á árinu 2023. 
Hraunhamar, í farabroddi í 40 ár. – Hraunhamar.is


https://www.facebook.com/hraunhamar
https://www.instagram.com/hraunhamar/

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.