Hraunhamar kynnir fallega íbúð á fimmtu hæð (Efsta hæð) við Berjavelli 6A vel staðsett í Vallarhverfinu í Hafnarfirði. Íbúðin er 109 fm með geymslu.
Flott staðsetning.
3 svefnherbergi.
Fallegt útsýni. Skipting eignarinnar: Forstofa, hol. eldhús, baðherbergi, þvottahús, þrjú svefnherbergi, stofa, svalir og geymsla, auk reglubundinnar sameignar.
Nánari lýsing:Forstofa með fataskápum.Gott hol.
Tvö fín
barnaherbergi með fataskápum,
Hjónaherbergi með fataskápum.
Eldhús með smekklegri innréttingu, borðkrókur við eldhúsið.
Björt
stofa og þaðan er utangengt út á fínar suðursvalir.
Flísalagt
baðherbergi með innréttingu, baðkar og þar er sturtuaðstaða.
Gólfefni eru parket og flísar. Í kjallara er sérgeymsla auk reglubundinar sameignar s.s. hjóla-og vagnageymsla.
Eignin er vel staðsett í hverfinu, stutt í verslanir og Ásvallalaug og Íþróttasvæði Hauka.
Þetta er smekkleg eign sem vert er að skoða. Nánari upplýsingar veitir Hlynur Halldórsson löggiltur fasteignasali í síma 6982603 eða í gegnum tölvupóst: [email protected]
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983 og fagnar því 40 ára afmæli á árinu 2023.
Hraunhamar, í farabroddi í 40 ár ! – Hraunhamar.is