Hraunhamar fasteigasala kynnir: Glæsilega bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í góðu fjölbýli, jarðhæð með sérafnotarétti, þ.e. hellulögð verönd/skjólgirðing. Sérinngangur. Suðurgarður. Stæði í lokuðu bílahúsi fylgir. Eignin skiptist m.a. þannig: Góður
sérinngangur, forstofa, hol,
glæsilegt eldhús með vönduðum ljósum innréttingum, en eldhúsið er opið inn í
stofuna/borðstofuna. Frá bjartri stofunni er útgengt út á hellulagða verönd í suður.
Hjónaherbergi er rúmgott með skáp, gott
barnaherbergi með skáp.
Glæsilegt baðherbergi (allt nýlegt) flísar í hólf og gólf, vönduð innrétting og tæki, baðkar með sturtuaðstöðu í, upphengt salerni.
Ágætt
þvottaherbergi á gangi.
Harðparket á gólfum.Gott stæði í bílahúsi. Góð sérgeymsla.
Snyrtileg hefðbundin hjóla og vagnageymsla.
Þetta er áhugarverð eign til að skoða, sérinngangur og sérgarður/verönd, stæði í bílahúsi.
Nánari upplýsingar veitir Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 eða [email protected] og
Valgerður Ása Gissurardóttir löggiltur fasteignasali í s. 791-7500 eða [email protected]Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. Þjónustusamningi
Hraunhamar er ein af elstu fasteignasölum landsins, stofnuð 1983 og fagnar því 41 ára afmæli á árinu 2024.
Hraunhamar í farabroddi í 41 ár! – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.