Kríuás 47, 221 Hafnarfjörður
87.500.000 Kr.
Fjölbýli
5 herb.
129 m2
87.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2002
Brunabótamat
59.650.000
Fasteignamat
79.150.000

Hraunhamar kynnnir 129,8 fm fimm herbergja endaíbúð á þriðju hæð (efsta hæð) með sér inngangi af svölum í snyrtilegu fjölbýli í Áslandshverfinu í Hafnarfirði. Glæsilegt útsýni og lyfta er í húsinu. 
Íbúðin hefur verið endurnýjuð á smekklegan hátt. 
Glæsileg eign sem vert er að skoða, seljandi skoðar skipti á  stærri eign í Áslandshverfinu með bílskúr. 


Skipting eignarinnar: Forstofa, hol, fjögur svefnherbergi, stofa, borðstofa, baðherbergi, eldhús, svalir og geymsla í kjallara. 

Lýsing eignar: 
Forstofa með fataskapum
Rúmgott hol. 
Björt og falleg stofa og borðstofa.
Eldhús með fallegum innréttingum og borðkróki.
Þrjú barnaherbergi, tvö þeirra með skápum. 
Rúmgott svefnherbergi með skápum, útgangur þar út á svalir. 
Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa, falleg innrétting á baðinu. 
Stórt og gott þvottahús. 

Gólfefni eru harðparket og flísar.
Í kjallara er geymsla auk reglubundinnar sameignar. 

Góð eign í vinsælu hverfi, stutt í skóla og leikskóla. 

Skv. upprunalegu skipulagi er íbúðin 4ja herbergja, en búið að bæta við herbergi á kostnað hluta stofunnar. 

Nánari upplýsingar veitir Hlynur Halldórsson löggiltur fasteignasali hjá Hraunhamri í s. 698-2603 eða í gegnum tölvupóst á [email protected]

Skoðunarskylda: 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.