Hraunhamar fasteignasala kynnir glæsilega og bjarta íbúð á efri hæð í nýlegu, vönduðu fjórbýli vel staðsett við Stuðlaskarð 5 í Skarðshlíðinni, Hafnarfirði. Eign í sérflokki.
Íbúðin er skráð 94,4 fm skv. Þjóðskrá Íslands og er fjögurra herbergja.
- Aukin lofthæð
- Þrjú svefnherbergi
- Stutt í skóla og leikskólaSkipting eignarinnar: Forstofa, gangur, stofa, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og svalir.Nánari lýsing: Forstofa með fataskáp.
Hol/gangur þar er góður geymsluskápur.
Eldhús og stofa í opnu og björtu rými. Einstaklega góð lofthæð. Innfelld lýsing að hluta til.
Eldhús með smekklegri innréttingu frá Brúnás og eldunartæki frá AEG. Litað hvítt gler á milli efri og neðri skápa.
Fínn borðkrókur í eldhúsi.
Björt og falleg
stofa, þaðan er útgengt á suður svalir.
Rúmgott
hjónaherbergi með fataskápum.
Tvö fín
barnaherbergi með fataskápum.
Flísalagt
baðherbergi í hólf og gólf með góðri innréttingu, sturtuklefa og handklæðaofn.
Inn af eldhúsinu er
þvottahús með glugga, fín innrétting þar og skolvaskur.
Gólfefni eru svansvottað harðparket frá Agli Árnasyni og flísar á votrýmum. Tvö merkt bílastæði fylgja íbúðinni. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Góð sameiginleg lóð með leikvelli, gott aðgengi er að húsinu. Stutt er í skóla og leikskóla.
Þetta er einstaklega falleg og vel skipulögð íbúð, hátt til lofts og stórir gluggar sem setja skemmtilegt yfirbragð á íbúðina.
Íbúðin var byggð af Byggingarfélaginu BYGG. Nánari upplýsingar veitir Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 eða [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í farabroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is