Áshamar 14, 221 Hafnarfjörður
79.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
105 m2
79.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
31.000.000

Hraunhamar kynnir: Glæsilega fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérafnotarétti á frábærum stað í Hamraneshverfinu í Hafnarfiði, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.  ATH: TVÖ BAÐHERBERGI !

Íbúðin  er fjögurra herbergja íbúð, skráð 105,3 fermetrar með geymslu. Auk þess fylgir stæði með í lokaðri bílageymslu. 

# Tvö baðherbergi og sérþvottahús
# Sérafnotaréttur
# Sérbílastæði í lokaðri bílageymslu. 

Húsið er klætt að utan með álklæðningu, og ál/timbur gluggar. 


Áshamar 12-18 verður byggt eftir ströngum eftirlitsstaðli Svansins. 
Sjá frekari upplýsingar um Svansvottun nýbygginga með því að smella hér.  

Um er að ræða virkilega skemmtilega fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð með tveimur baðherbergjum og með sérafnotaflöt.


Nánari lýsing skv. teikningu:
Forstofa með fataskáp.
Gott opið rými, þar sem eldhús og stofa eru samliggjandi.
Eldhús með smekklegri innréttingu frá HTH og vönduðum eldunartækjum. 
Björt stofa og borðstofa og þaðan er útgengt á verönd sem snýr til suðurs. 
Tvö góð svefnherbergi með fataskápum. 
Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum, flísalagt baðherbergi þar inn af með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu. 
Flísalagt baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu.
Þvottahús með flísum á gólfi.
Sér geymsla í sameign. 
Sér stæði í bílageymslu. 

Áshamar 12-18 er hluti af klasabyggingu þar sem skemmtilegur garður mun tengja húsin saman. 
Eykt ehf er byggingaraðili hússins sem er reynslumikið og traust byggingarfyrirtæki með áratuga reynslu.


Kaupandi borgar skipulagsgjald þegar þess verður krafist sem er 0,3 % af væntu brunabótamati eignarinnar. 

Bókið skoðun hjá fasteignasölum 
Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, [email protected]
Valgerður Ása Gissurardóttir löggiltur fasteignasali, s.791-7500. [email protected]
Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, [email protected]


Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í farabroddi í rúm 40 ár ! – Hraunhamar.is 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.