Breiðhella 3 104, 221 Hafnarfjörður
44.500.000 Kr.
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
0 herb.
132 m2
44.500.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
0

Hraunhamar kynnir: Breiðhella 3 bil merkt 104 Hafnarfirði. Nýtt glæsilegt hús, atvinnuhúsnæði. Bil 104 er 132,9 fm fm og þar af er 62,9 fm milliloft. Stór sameiginleg afgirt lóð er með lokuðu hliði.  Frábær staðsetning til framtíðar. 
Húsið er límtréshús með yleinginum frá PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan
Traustir og góðir verktakar KB verk ehf. (sömu aðilar byggðu samskonar hús m.a. Borgahellu 1,3 og 5 og Dofrahellu 6 sem seldust öll á stuttum tíma) 


Breiðhella 3 Hfj. Engin vsk kvöð. (skráð sem geymsla) Mikil lofthæð 6,5 metrar við útvegg og 7,5 metrar við mæni samkv. teikningum.

Áætlaður afhendingartími er í nóvember 2024.


Kaupandi borgar 0,3% skipulagsgjald þegar það verður lagt á við brunabótamat.

Um er að ræða geymslu- og atvinnuhúsnæði að Breiðhellu 3. Húsið skiptist í 14 eignar-/leigurými.

Inntaksrými er í norður enda hússins og er sameiginlegt.  Byggingin er á einni hæð en sum bil eru með millilofti. Gólf eru járnbent, staðsteypt og vélslípuð.

Einingarnar 14 eru að mismunandi stærðum frá 65-192 fm nokkrar með millilofti.  Allar einingar eru með ræstivask. Einingar hafa aðgang að sameiginlegum sorpgám á lóð. Lóðin verður malbikuð með nægum bílastæðum, afgirt þar sem við á. Húsnæðið skilast fullfrágengið með lokaúttekt, byggingarstig 7.

Uppbygging húss: Húsið er byggt ofan á steypta sökkla með hefðbundinni staðsteyptri plötu. Burðargrind hússins er úr límtré.
Mikil lofthæð 6,5m við útvegg og 7,5m við mæni.
Útveggir: Burðargrind hússins klædd með PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Veggeiningar eru 80mm á þykkt með microrib áferð. Litur RAL 7021. Málningarhúð á veggeiningum er 55 míkron á þykkt og valin sérstaklega til að verjast betur gegn UV-geislun (upplitun) og veðrun.
Hurðir: Innkeyrsluhurðir frá Hörmann, litur RAL 7021 með samlitum álgluggum.  Stærð hurða 325x360. Húsið skilast með vönduðum timburálgluggum og hurðum frá REYNEARS.  Litur RAL 7021.
Þak: Þak er byggt upp með 100mm þykkum PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Málningarhúð 200 míkron. Litur RAL 7021.
Innveggir og loft: Innveggir eru gerðir úr OSB krossvið/spónaplötum í innralagi klætt með gifsi, með steinullareinangrun á milli. Tilbúnir til spörslunar og málningu.
Gólf: Gólf eru járnbent, staðsteypt og vélslípuð.
Hitun: Hitun húsnæðisins verður með gólfhita.
Raflögn: Rafmagn (utanáliggjandi) fullfrágengið skv. teikningum og skilast með góðum iðnaðarlömpum í lofti og útikastara fyrir ofan iðnaðarhurð.
Skilast með þriggja fasa tengil og 16A tengil undir töflu.
Lóð: Lóð verður fullfrágengin með góðu malbikuðu bílaplani, sjá afstöðumynd.
Brunavarnir: Brunavarnir eru samkvæmt reglugerð.
Salerni: Frárennslislagnir verða tilstaðar fyrir möguleika á salerni
Ræsting: Ræstivaskur er í hverri einingu skv. Teikningum

Allar nánari upplýsingar veitir Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali á netfangið [email protected] eða s. 896-6076

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
5. Umsýslugjald til fasteignasölu kr.68.200.-m.vsk.

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í 41 ár. – Hraunhamar.is 

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.