Hallgerðartún 40, 860 Hvolsvöllur
69.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
5 herb.
143 m2
69.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
6.310.000

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilegt nýtt fimm herbergja parhús á einni hæð við Hallgerðartún 40 á Hvolsvelli. Húsið skilast fullbúið og lóðin grófjöfnuð en mulningur í bílaplani. Til afhendingar strax við kaupsamning. 

Eignin er skráð skv. FMR 143 fm en þar af er 31,5 fm bílskúr. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Nánari lýsing eignar:
Rúmgóð flísalögð forstofa með fataskáp. 
Gott opið alrými þar sem eldhús og stofa/borðstofa eru samliggjandi. 
Útgengt þaðan út í garð. 
Gott sjónvarpshol.
Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum. 
Þrjú góð svefnherbergi með fataskáp. 
Flísalagt baðherbergi með innréttingu, sturtu og upphengdu salerni. Handklæðaofn. Þvottaaðstaða inn á baðherbergi. 
Bílskúr með gönguhurð. Innangengt frá bílskúr í forstofu. 

Gólefni eru parket og flísar. Gólfhiti með sér stýringu fyrir hvert rými. 

Um er að ræða vel skipulagt parhús á einni hæð sem vert er að skoða. Húsið er timburhús klætt með báruáli, gluggar og hurðir eru frá Byko. 

Húsið skilast fullbúið og lóðin grófjöfnuð en mulningur í bílaplani. 

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist sem er 0,3% af brunabótamati. 

Nánari upplýsingar veita:
Helgi Jón Harðarson sölustj. í s. 893-2233 eða [email protected] og 
Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 eða [email protected]

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is


Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.