Suðurhella 12 íb. 302, 221 Hafnarfjörður
65.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
87 m2
65.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
4.500.000

BÓKIÐ SKOÐUN - SÝNUM SAMDÆGURS - Vala s. 791-7500, Glódís s. 659-0510, Helgi s. 893-2233, Hlynur s. 698-2603, Ársæll s. 896-6076

Hraunhamar kynnir: Glæsilega nýbyggingu á frábærum stað í Vallarhverfinu í Hafnarfirði, einstakt útsýni yfir hraunbreiðuna og til fjalla. 
Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum.

Íbúð 302 er 87,1 fm og þar af er 7 fm geymsla merkt 0106 ásamt 8,5 fm svölum.

_______________________
2ja,3ja og 4ra herbergja 
Stærðir frá 67,9 fm til 123,1 fm. 
Verð er frá 58 millj.
_______________________


ATH: Myndir eru af sýningaríbúð og getur skipulag íbúðar verið annað. Efnisval á innréttingum og gólfefnum er eins í öllum íbúðum. 

Afhending í október 2024. Sjá skilalýsingu hér.

Um er að ræða virkilega skemmtilega íbúð með sérinngangi af svölum á 3. hæð í nálægð við fallega náttúru. 


Nánari lýsing skv. teikningu:
Forstofa með fataskápum.
Gott opið rými, þar sem eldhús og stofa eru í björtu og fallegu alrými.
Eldhús með smekklegri innréttingu frá Axis og vönduðum eldunartækjum AEG. 
Stofa/borðstofa er björt, þaðan er útgengt á svalir.
Hjónaherbergi er með fataskápum.
Svefnherbergi er með fataskáp. 
Flísalagt baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu.
Þvottahús er sér og innan íbúðar.
Geymsla í sameign er 7 fm. 

Gólefni eru harðparket og flísar. 
Húsið er klætt að utan með álklæðningu, og ál/tré gluggar. 
Stórir gluggar þar sem útsýnið fær að njóta sín.


Kaupandi borgar skipulagsgjald þegar þess verður krafist sem er 0,3 % af væntu brunabótamati eignarinnar. 

Suðurhella 12 er hluti af klasabyggingu þar sem skemmtilegur garður mun tengja húsin saman. Í stigaganginum eru 27 íbúðir.
ÞBF ehf. er byggingaraðili hússins og er reynslumikið og traust byggingarfyrirtæki sem hefur unnið við húsbyggingar í áratugi. 

Hægt er að nálgast skilalýsingu og fá nánari upplýsingar hjá Hraunhamri fasteignasölu. 

Bókið skoðun hjá sölumönnum Hraunhamars: 

Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali s. 896-6076, [email protected]
Valgerður Gissurardóttir löggiltur fasteignasali s.791-7500, [email protected]
Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, [email protected]
Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, [email protected]
Helgi Jón Harðarson, sölust. s. 893-2233, [email protected]

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í farabroddi í rúm 40 ár ! – Hraunhamar.is 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.